top of page
ChatGPT Image Apr 21, 2026, 12_03_00 AM.png

Ferli ökunámsins - skref fyrir skref

1. Velja ökukennara

Fyrsta skrefið er að finna ökukennara.
Finnur mig þar: Sæþór Steingrímsson
https://island.is/okukennarar-med-starfsleyfi

​​

2. Sækja um námsheimild

Sótt er um ökuskírteini (námsheimild) hjá sýslumanni.
Hægt er að sækja um rafrænt á island.is. (https://island.is/fyrsta-okuskirteini-namsheimild)

3. Fyrstu aksturstímarnir

Við byrjum aksturstíma saman. Ég leiðbeini þér hvaða ökuskóla ég mæli með.
Þú þarft að klára að lágmarki 10-12 tíma og taka Ökuskóla 1 áður en þú færð æfingaleyfi.

4. Æfingaakstur

Eftir fyrstu tímana getur þú byrjað æfingaakstur með leiðbeinanda (t.d. foreldri).
Sækja um að gerast leiðbeinandi í æfingaakstri: https://island.is/umsokn-um-aefingaakstur
Á þessum tíma þarftu einnig að klára:
  • Ökuskóla 2
  • Ökuskóla 3

5. Undirbúningur fyrir próf

Um það bil 2,5–3 mánuðum áður en þú verður 17 ára förum við í frekari aksturstíma (tími 13 og 14).
Einnig tekur þú undirbúningstíma fyrir bæði bóklegt og verklegt próf. 
Taka má bóklegt próf 2 mánuðum fyrir 17 ára afmælisdag. Lágmarksfjöldi verklegra ökutíma fyrir bóklegt próf er 12 ef Ökuskóla 3 er lokið, annars 14 tímar.

6. Bóklegt próf

Hægt er að taka bóklega prófið 2 mánuðum fyrir 17 ára afmælið.

7. Verklegt próf

Undirbúningur fyrir verklega prófið fer eftir þínum framförum.
Lágmark er 17-25 aksturstímar áður en þú ferð í próf. Lágmarkið er samt 15 tímar.
Verklega prófið er lokaskrefið í ferlinu.

8. Staðist próf

Þegar ökunemi hefur staðist bæði bókleg og verkleg próf gefur sýslumaður út bráðabirgðaskírteini til þeirra sem hafa náð 17 ára aldri.
Bráðabirgðaskírteinið gildir í 1-3 ár. Að þeim tíma loknum má sækja um fullnaðarskírteini.
Nánar um skilyrði fyrir útgáfu ökuskírteina í reglugerð nr. 830/2011 um ökuskírteini.

9. Akstursmat

Áður en fullnaðarskírteini er gefið út þarf að óska eftir akstursmati hjá ökukennara.
Ökumaður ræður sjálfur hvaða ökukennari annast aksturmatið fyrir hann og greiðir ökukennaranum fyrir matið samkvæmt gjaldskrá hans.
 
Hvað er akstursmat?
Í akstursmati er kannað hvort mat ökumanns á eigin aksturshæfni, akstursháttum og öryggi í umferðinni sé í samræmi við raunverulega getu hans. Markmið akstursmats er að ökumaðurinn geri sér grein fyrir hæfni sinni og getu í umferðinni með tilliti til umferðaröryggis.

10. Ökuskírteini - fullnaðarskírteini gefið út

Sækja má um fullnaðarskírteini á Ísland.is þegar ökumaður hefur
  • ekið á bráðabirgðaskírteini í eitt ár samfellt án þess að fá punkt vegna umferðarlagabrots
  • farið í akstursmat
Bráðabirgðaskírteinið rennur út eftir þrjú ár frá útgáfudegi. Þá þarf ökumaður að sækja um fullnaðarskírteini eða fá nýtt bráðabirgðaskírteini gefið út.
bottom of page